Svefn, kefn...

Fórum í langþráð viðtal upp á spítala - töluðum við svefnráðgjafa og hafði hún ýmislegt til málanna að leggja. Reyndar svo mikið, mælt svo þýtt og stemmarinn inni hjá henni var svo hlýlegur og notalegur að við GullaNóa urðum að leggja okkur strax eftir fundinn... Hvað um það, nú verður breytt um stefnu í svefnmálum og fær Einsi algerlega að sjá um þá hlið málsins - ég fæ að díla við dagblundinn og fæ að hafa svipaðan háttinn á og hann. Þetta verður barátta en vonandi bara í nokkra daga :-)
Glöðust verð ég ef ég skyldi fá 1-2ja tíma ,,frí" á daginn - þá getur maður kannski sest á dolluna í rólegheitum og lesið Lifandi Vísindi án þess að nokkur sé að berja grenjandi á hurðina...?
Já, svo bakaði ég böku handa okkur í kvöld - í tilefni af því að Alli minn er að fara til tannsa í fyrramálið og er að missa amk 50% af spöngunum! Júhú!