Hrukkurnar eiga bara að sýna hvar áður var bros
-Mark Twain
Já, nú er það þvinnkan sem ræður ríkjum, eða eins og einhver sagði ríður rækjum... úff... Hitti stórkostlega skemmtilega stelpu í gærkvöldi, Kötu að norðan, sem ekki var valin í
Djúpu á föstudagskvöldið. Sem betur fer fyrir mig, þvi annars hefði ég aldrei skemmt mér svona hrykalega konunglega í nótt... Hún bara með þeim betri og styrkir mann enn meira í þeirri skoðun sinni að fara nú að drífa sig norður á ærlegt djamm... breyta aðeins til. Eníveis, Sigga Hrönn vinkona var hjá mér um helgina, því Háskólinn á AK
ureyri var í vísindaferð hér í höfuðborginni. Við hittum samnemendur hennar á Gauknum í gær, pöntuðum pítsur, átum og drukkum öl... svakalegt stuð. Við Kata fengum þá flugu í höfuðið að fara að dansa Mikael Djakson á dansgólfinu allt of snemma, þ.e. þegar engin var að dansa en aftur á móti margir að horfa... hahahhah... við vissum ekkert hvað við vorum að gera, vorum að dansa saman í fyrsta sinn og þekktumst ekkert;-/ Þetta var frábært og Kata fékk mörg rokkstig. Hún fékk líka ómælda athygli frá karlpjéningnum, enda enn vot eftir djúpu laugina. Við skutluðum henni samt einni heim í nótt, engar ólöglegar veiðar á þeim bænum.. Við nöfnurnar fórum líka einar heim, enda erum við með ólölega
möskvastærðir þessa dagana... hvað svo sem það nú þýðir. Þetta var allt saman hið skemmtilegasta, hitti Svöndu, Heiðu, Heiðu og Hebu þar líka, það var alveg ágætt að tjútta við þær á glerbrotunum sem dreifðust um öll gólf þarna. Ótrúlegt hvað sóðaskapurinn tekur við eftir miðnætti á þessum stöðum... þótt þetta hljómi kellingalega þá er þetta bara þannig og óþolandi að setjast á útmigið klósett og ganga á glerbrotum eða hálfmeltum mat.. eníveis, skemmtilegt gærkvöld. Það var gaman að hafa Siggu Hrönn um helgina, skemtilegt að hafa sambýling sem er eldri en 9 ára til tilbreytingar ;-)
Nú hafa Spánverjar möguleika á að jafna á moti helvítis Frökkum á HM, eins gott fyrir þá að gera það... annars er mér að mæta.. þeir drulla í buxurnar af hræðslu við þetta, eða þannig;-/ Nei... mér sýnist þeir ekkert ætla að gera það... þá hangir maður bara í voninni að Króatía hreppi heimsmeistaradolluna af Þjóðverjafíflunum... Hey.. það er enn smá smuga fyrir Spánverja... júhú. Nú er best að klæða sig úr öllum fötunum, setja á sig Áfram Ísland-húfuna, halda á ryksugunni í annari hendi og um eyrað með hinni, þá ætti sigurinn að vera í höfn ~;-p