sunnudagur, nóvember 30
Tókst að lauma mér út...
.. úr herberginu hjá dótturinni áður en hún sofnaði, enda var hún óvenju þreytt eftir veisluhöld dagsins. Þar af leiðandi uppskar ég eins og við sáðum - hún bara svaf út í eitt! Í dag fórum við í laufabrauðsskurðboð hjá móðurfjölskyldunni og þar hafði hún sko mikið að skoða! Annars erum við búin að hafa það ferlega næs um helgina, bara dútl í flöskum sem hafa verið tæmdar (uppskeruhátíð með æskuvinunum), leti og smá jólast... svo er ég komin með geðveikt æði fyrir hummus... og búin að baka piparkökurnar... og baka rúgbrauð... Humm... ætli ég c ólétt?
(3) comments
miðvikudagur, nóvember 26
(2) comments
laugardagur, nóvember 22
Kraftaverkin gerast, í alvöru!!!
Já, haldiði ekki bara að barnið hafi ekki teygt sig í rúmið þegar ég gerði mig líklega til að leggja hana í það áðan, lagðist með hausinn á koddann, hélt í Lölu sína (sem Amma Gulla gaf henni fyrr um daginn), lagði aftur augun og þegar ég kveikti á spiladósinni var hún farin... í draumaheiminn! Ég var búin að búa mig undir að það væri einhverjar framfariri í þessum málum - en þetta er bara rosalegt! Ég lagðist í gestarúmið og fannst í alvöru að þetta væri ekki barnið mitt, að þetta gæti ekki gengið svona auðveldlega... en það er víst satt - er búin að fara inn til hennar og athuga... hún er ennþá sama GN og hún hefur alltaf verið (í þessa rúmu 9 mánuði) og er sofandi - ekki búin að kafna í frekju eða hræðslu... Og það er laugardagskvöld... á mar ekki að halda upp á þetta með einhverjum hætti?
(1) comments
föstudagur, nóvember 21
Í dag bökuðum við GN súkkulaði ostaköku...
 Og ég komst að því að ég á lítinn Þvörusleiki :-)
(3) comments
fimmtudagur, nóvember 20
Allt að gerast... eða þannig...
 Já, nú er dagur hvað... fjögur í hinni nýju svefnaðlögun og það sást aðeins til sólar hjá mér áðan. Daman hætti að gráta og þegar ég lagði hana niður (í fimmtánda sinn) þá ákvað hún að það væri bara fínt að fara að sofa... svo ég vona að þetta c allt að koma. Málið er að hún er svo tryyylt af hræðslu þegar hún er ein í herberginu að okkur var ráðlagt að liggja bara í gestarúminu og aftengja ,,þjónustufulltrúan" í okkur, láta hana bara reglulega niður og taka hana alls ekki upp úr rúminu. Svo ég hef legið... og huxað.. og legið ... og verið með verk í eyrunum eftir öskrin... því þau eru svo snjöll að þau gera allt til að komast úr rúminu. GN er farin að kúka þegar þetta er að ganga yfir - og þá náttlega fær hún sitt fram, maður tekur hana upp og skiptir á henni... en ofan í rúm fer hún aftur og þá er bara argað og gargað.... þangað til snuðið dettur í gólfið. Þá stend ég upp eftir smá stund, sting því upp í hana, legg niður og strýk aðeins um bakið. Upp ríkur hún, öskrar og gargar ... og sofnar yfirleitt með ekka. Ég veit að þetta ástand getur ekki gengið lengi, því ekki nenni ég að verða heyrnarlaus á þessum görgum öllum saman. Annars er lítið að frétta - tengdó er að koma um helgina og ég er búin að taka læri úr frystinum og setja það í leg.. lög... ;-) Einsi er að fara að spila póker á fyrsta móti Pókersambands Íslands og ég vona bara að hann verði ekki handtekinn - ef það verður þá sé ég mig tilneydda til að brjóta hann út úr löggustöðinni - væri það ekki smart?
Atvinnulaus húsmóðir með heyrnarskerðingu og fordóma gagnvart feitum ökumönnum á jeppum (35) handtekin eftir að hafa reynt að brjótast inn á lögreglustöðina við Hlemm á skurðgröfu! Smart...
(2) comments
miðvikudagur, nóvember 19
Maður spyr sig...
Ef Húsasmiðjan getur boðið upp á sama verð á seríum og í fyrra, eru þeir þá með ársgamlar seríur til sölu (sem þarf ekkert að vera svo vont) eða var álagningin í fyrra svo gígantísk að þeir eru ennþá að koma út í gróða þrátt fyrir fall krónunar og allt það?
(2) comments
mánudagur, nóvember 17
Svefn, kefn...
 Fórum í langþráð viðtal upp á spítala - töluðum við svefnráðgjafa og hafði hún ýmislegt til málanna að leggja. Reyndar svo mikið, mælt svo þýtt og stemmarinn inni hjá henni var svo hlýlegur og notalegur að við GullaNóa urðum að leggja okkur strax eftir fundinn... Hvað um það, nú verður breytt um stefnu í svefnmálum og fær Einsi algerlega að sjá um þá hlið málsins - ég fæ að díla við dagblundinn og fæ að hafa svipaðan háttinn á og hann. Þetta verður barátta en vonandi bara í nokkra daga :-) Glöðust verð ég ef ég skyldi fá 1-2ja tíma ,,frí" á daginn - þá getur maður kannski sest á dolluna í rólegheitum og lesið Lifandi Vísindi án þess að nokkur sé að berja grenjandi á hurðina...? Já, svo bakaði ég böku handa okkur í kvöld - í tilefni af því að Alli minn er að fara til tannsa í fyrramálið og er að missa amk 50% af spöngunum! Júhú!
(0) comments
sunnudagur, nóvember 16
Vér mótmælum öll!
Vorum með þennan fína sítrónukjúlla á föstudeginum og kínversku konu hans Atla fannst hann bara góður og allir voru saddir - gleymdi samt að bjóða henni að fá sér prjóna til að borða með, lagði hnífapör á borð eins og ekkert væri :-/ Engin hafði pláss fyrir neinn eftirrétt svo hann var ekkert gerður og allir stuffed og hamingjusamir - spjallað fram að miðnætti og farið tiltölulega snemma í háttinn ... Svo fórum við á mótmælin í gær á Austurvelli, þ.e.a.s. fórum á Thorvaldsen og horfðum út um gluggan á mótmælin :) Er maður orðin gamall or vott? Við höfðum ákveðið hitting með vinum okkar og það var bara frekar notalegt að þurfa ekki að vera með smábörnin úti í kaðakinu og kuldanum - þótt ekki hafi þjónustan á Thorvaldsen verið upp á marga fiska. Við enduðum á að fá 20% afslátt af öllu, enda eyddum við 80% af tíma okkar í að bíða eftir einhverjum rétti sem fór óvart á annað borð, eða fengum óvænta rétti sem áttu að fara á önnur borð, fengum kalda rétti, korkað kaffi latté og svo mætti lengi telja. Hvað um það... mótmælin fóru friðsamlega fram en þegar formlegum mótmælum lauk þá skrapp ég út að Alþingishúsi til að kanna stemmarann þar. Fannst mér vera hiti í mönnum, einhver var með gjalllúður, svartir fánar blöktu, búið að henda klósettpappír á húsið og almenn reiði í mannskapnum. Af og til ruddust fram 5-7 ungir menn, með hendur hlaðnar matvörum og gríttu húsið - létu sig svo hverfa í framhaldinu... fóru aftar og hlóðu vasa sína að nýju. Ég sá hinum undarlegustu matvælum og hlutum hent í húsið, ekki bara eggjum, þarna voru íkveiktar klósettpappírsrúllur, melónur og sitthvað fleira ... greinilegt að þeir hafa valið dýrustu matvörurnar og lúxusvarninginn til að fleygja frá sér í mótmælaskyni... engin kreppa greinilega þar á bæ? Persónulega langaði mig til að vera með skilti í mótmælunum sem á stóð: ,,helvítis skítaveður!" Svo brugðum við okkur á Jón Bónda í gærkvöldi - daman fór í fyrsta sinn í pössun að heiman! Þetta var CCP-sýning (glætan að ég fari að borga mig í bíó!) og átti að hefjast kl. 19:30. Við fórum með dömuna í pössun til móðurs Hjallastefnunnar og hafði hún tvo menntaða uppeldisfræðinga til að stjana við sig á meðan mamman og pabbinn glöptu gáttuð á Bond myrða hvern glæponinn á fætur öðrum. Ég ætlaði að telja hvað hann myndi drepa marga - týndi tölunni eftir fimm dráp .. held að það hafi verið liðnar svona þrjár mínútur af myndinni... annars fín mynd, svolítið hröð og ekki ganga alveg upp þessi aðal hasaratriði - eins og með bátinn og flugvélina... skil ekki alveg ennþá hvernig þau redduðu sér úr því... en ég er kannski bara farin að sjá svona hægt með hækkandi aldri? Svo var brunað með hjartað í buxunum út á Álftanes að ná í Gulluna - var hún hin hressasta og það eina sem hún hafði gert af sér var að bræða hjartað í Lilju og Möggu Pálu :-) Gott að geta brugðið sér af bæ svona aðeins og látið eins og maður sé að deita aftur - bráðnauðsynlegt af og til :-) Svo er það sund í dag og skírn eftir það - úfff - búin að vera fullbókuð helgi og bara brjálað að gera! Fínt að hafa sitthvað fyrir stafni því nú sé ég fram á rólega viku og litla sem enga vinnu að fá - er að spá í að hella mér út í ferðamannabissnessinn... er það ekki það eina sem er að vaxa um þessar mundir?
(0) comments
föstudagur, nóvember 14
(0) comments
Að skjóta sig í löppina...
 Núna er ég algerlega að gera út af við sjálfa mig - verst að maður getur ekki sagt sjálfum sér upp... eða sagt sig frá sjálfum sér. Við ætlum að hafa smá matarboð í kvöld því Atli vinur okkar í Shanghai er á landinu með konu og barni. Málið er að hún er kínversk og ég er búin að lofa að gera sítrónukjúlla... og það eru grjón með honum... hvernig eldar maður eiginlega hrísgrjón fyrir Kínverja? Ég held að ég finni einhvern fordrykk til að koma ofan í konuna svo hún taki minna eftir því hvað grjónin eru eitthvað.... íslensk :-) Annars var ég að spá í að bjóða þeim svo upp á skyrtertu í desert - eða eitthvað svona íslenskt í desert... man bara eftir skyrtertunni... er eitthvað annað svona eftirréttalegt sem er líka íslenskt? Any ideas?
(1) comments
fimmtudagur, nóvember 13
Þá er því lokið...
Já, lokaprófið á námskeiðinu mínu var í dag. Áttum að henda saman einum vef um eitthvað sem er okkur hugleikið og af sjálfsögðu gerð húsfreyjan, atvinnulausa, kreppuvef. Ógurlega glöð yfir því að nú er þessu námskeiði lokið og ekki er verra að fá svona ljómandi umsögn frá kennaranum, en hann var glaður með þetta allt hjá mér (eða þessar fimm síður :-)) Nú getur maður farið að huxa til jólanna, enda búin að vera með ,,have yourself a merry merry Christmas" á heilanum síðan ég kom heim.. :-) Er að spá í að fá mér bara merry merry GullaNóa í staðin og athuga hvort hún dugi ekki í þessa 43 daga sem eru til jóla :-)
(0) comments
mánudagur, nóvember 10
Nýtt met!
Ég lagði mig með GulluNóu í dag, en dagsvefninn hennar hefur verið í algeru fokki. Nærsvefninn hefur verið slæmur, viðráðanlegur þó... en dagsvefninn bara enginn... korter- tuttugumínútur í svefn yfir allan daginn er ekkert grín fyrir 9 mánaða barn. Hvað þá þegar hún var 3ja mánaða. Núna ákvað semsé kjérlingin að færa fórnir... lagði sig með henni og náði til að láta barnið sofa í þrjá tíma! Ég var af sjálfsögðu neydd til að vera upp í rúmi líka og svaf sjálf mest allan tímann og held ég bara að við mæðgur höfum haft gott af því :-) Ætla að gera þetta út þessa viku og sjá hvort hún fatti ekki hvað það er gott að sofa vel og lengi :-) Annars heyrði ég í Röggu minni áðan, rosaleg hamingja hjá henni og get ég ekki lýst því hvað það er góð tilfinning að vita það :-)
(2) comments
sunnudagur, nóvember 9
Til allra pabba
Er tárin tindra svo skært mig blíðlega hann huggar, einhver hefur hjarta mitt sært í örmum sínum, hann mér ruggar
Hann yfir mér heldur verndar hendi sem dregur úr mínu falli, hann ávalt við hlið mér lendir um leið og heyrist í mínu kalli
Hann alltaf situr mér hjá hann er stytta mín og stoð sem ég legg traust mitt á einskonar átrúnargoð.
Hann brosir svo blítt breiðir út faðminn sinn, í fangi hans er svo hlýtt hann er elsku pabbi minn.
Tekið af ljod.is
| höf. Kristrún Huld Hafberg 1978- |
|
(0) comments
föstudagur, nóvember 7
ok....
Við erum víst að fá lán frá IMF, sem er reyndar með dularfyllri málum í íslenskri stjórnmálasögu. Lánið kemur ekki - fullt af þjóðum segjast ætla að lána okkur ef við fáum lán frá IMF.. IMF ætlar að lána okkur ef allir aðrir gera það.. pólverjar segjast ætla að lána okkur en ekki vill Geir kannast við það. Ég legg til að ráðamenn þjóðarinnar fari bara að eiga samskipti sín á milli, taki upp símann og svari í hann þegar hann hringir... og síðast en ekki síst...talið við OKKUR! Vott þe fokk is góing on? Nógu erfitt er að hlusta á seðlabanka(ó)stjóra tala verðið á íbúðinni minni niður um 45%, horfa á verðtryggða lánið mitt éta upp þessa þúsundkalla sem ég var búin að eignast í henni og lifa við að lánið verði líklegast mikið mun meira en eigin sjálf, atvinnuleysi tíuprósent og ég finn enga vinnu til að sækja um... útlitið er heldur dökkt þessa dagana og einhvernveginn dapurlegt að hlusta á hvern fréttatímann á fætur öðrum sem byrjar á slæmum fréttum eða einhverjum misskilningi og óstjórn... Er ekki kvennalandsliðið í fótbolta að fara að keppa bráðlega? Bara svona svo maður hafi einhverja von fyrir íslenska sálu...
(1) comments
Níu mánaða!
Daman varð níu mánaða í gær og Sævar Óli frændi eins árs... hvað tíminn flýgur þegar maður borðar flugur, jahérnahér :-) Annars er aðeins að rofa til í svefnmálum - daman er búin að snarminnka vaknanirnar sínar en getur vel tekið erfiða 2ja tíma vökur inn á milli... bara svona rétt til að minna aðeins á sig :-) Annars er stór stór helgi framundan, FanFest hjá Einsa (Nördalert til ykkar hinna!), brunch með frænkunum og niðjum á morgun, báðir bræðurnir í bænum og öll fjölskyldan komin með kort í Veggsporti... nú skal sko mörinn leka af okkur og skvassið stundað af kappi! Að lokum er svo hér einn góður - góða helgi!
(0) comments
miðvikudagur, nóvember 5
Hver þarf svosem að sofa??? Ekki ég... :-/
Daman heldur áfram að vera jafn yndisleg og henni er tamt en svefninn er alveg að fara í ruglið bara :-( Við tókum hana af þessum lyfjum eftir viku enda gerðu þau lítið gagn og voru alls ekki áhættunar virði ... hún svaf lítið betur, eitthvað þó - og vaknaði ekki ,,nema" svona 5 sinnum fyrir miðnætti að meðaltali sem er aðeins minna en vanalega. Svo við bara nenntum þessu ekki - bæði var líka orðið slagsmál að koma þessari drullu ofan í hana og svo var það þessi áhætta með öndunarstoppið. Mér er lítið sama þótt þetta hafi verið reynt í mörg ár og ekkert slys gerst enn - en ef það er tekið fram að það sé einhver áhætta þá hefur greinilega eitthvað gerst - og ekki vil ég að það gerist hjá mínu barni. Áslaug og Helgi komu yfir í gær í kostningavöku og fékk ég lit yfir gráu hárin í leiðinni. Daman ákvað að sýna sínar bestustu gestahliðar, eða þannig.... hún sofnaði kl. 23 eftir að ég og Einsi höfðum verið til skiptis uppi hjá henni að reyna að svæfa hana - ég gafst upp á endanum og tók hana niður... rosaleg sem hún fílaði sig vel í Slaugufangi og fékk alla þá athygli sem hana vantaði. Svo hér sit ég... ógurlega þreytt og ósofin - hef ekki fengið mér heilan næturblund síðan ég veit ekki hvenær, því ég var löngu hætt að sofa áður en daman kom í heiminn vegna fótaóeyrðar og almennra flóðhestasyndróma :-/ Við eigum pantaðan tíma hjá svefnráðgjafa þann 17. þessa mánaðar og verður fínt að fá einhvern pro til að kíkja á málin. Ég klára námskeiðið á föstudaginn og hlakka ég svolítið til að fá quality time aftur í mitt líf - því það er ekkert auðvelt að klípa daginn svona í sundur, bæði Einsi að redda málum með því að koma heim og vinna svo langt fram á kvöld. Svo er Alli minn búinn að vera svo óguelga veikur síðan á sunnudag - í kvöld var hann með yfir 40 stiga hita og leið svo ömurlega að það hálfa væri hellingur... Greyið... Þannig að það er ástand á okkur... :-/ Sofa? Hver þarf að sofa fyrr en hann er kominn á Grund?
(1) comments
mánudagur, nóvember 3
Til hamingju elsku Ranka mín!
 Var að fá þær fréttir að elskuleg Ragga mín var að eignast stúlku núna áðan - hún var sett af stað í gærkvöldi og kom daman núna... ég fékk þessar upplýsingar af Fésbókinni og veit lítið meira... Jú - var að fá meiri upplýsingar.. tæplega 16 merkur - stutt og krúttleg! Hlakka ógó mikið til að sjá myndir ... og Ragga mín, Hörður og Haraldur - ég samgleðst ykkur svo innilega, elsku krútt :-)
(0) comments
sunnudagur, nóvember 2
Í kvöld...
 .. .ætla ég að kveikja á kertum og senda mína bestu hugarstrauma til góðar vinkonu minnar... vonandi vöknum við öll við gleðifréttir í fyrramálið :-)
(0) comments
|